Landlæknir tekur undir með kára

Birgir Jakobsson, landlæknir tekur undir með Kára Stefánssyni um að auka þurfi framlög til heilbrigðismála og segir heilbrigðiskerfið á Íslandi hafa verið svelt fjárhagslega árum saman.

Landlæknir vill þó ekki binda sig við ákveðnar hlutfallstölur í þessu sambandi en Kári hefur sett á oddinn tiltekið hlutfall af landsframleiðslu. Þetta kom fram í samtali Landlæknis við Ólafana áHringbraut í gærkvöld, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar.

Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar, frumsýndir öll fimmtudagskvöld klukkan 21:30 og taka á þjóðfélagsmálum eins og Ólöfunum er einum lagið.