Íslenskri fjölskydu sem kom nýverið heim frá Kína finnst það vera skrítið að þurfa að vera í sóttkví í tvær vikur á meðan kínverskir ferðamenn hér á landi þurfi þess ekki. Þá hafi honum verið tjáð af fulltrúa hjá Landlækni að ef einhver nálgaðist hann þá ætti hann að hlaupa í burtu.
Stefán Úlfarsson kom frá Kína ásamt konu sinni, sem er kínversk, og dóttur sinni á mánudaginn og eru þau nú á sínum öðrum degi í sóttkví. Hann segir í samtali við Vísi að hann hafi fylgt leiðbeiningum íslenska sendiráðsins í Kína og sett sig á lista hjá borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins.
„Eftir að við komum til Íslands setti ég mig í samband við Landlækni eins og beðið var um. Þar var mér bent á að hafa samband við heilsugæsluna og læknavaktina. Þar fékk ég þær upplýsingar að við þyrftum ekki að hafa neinar áhyggjur,“ segir Stefán.
Þeim hafi einungis verið bent á að gæta hreinlætis og fylgjast vel með heilsunni. Annað kom þó á daginn, því að síðar sama dag kom tölvupóstur frá sóttvarnarlækni þar sem honum var tjáð að búið væri að uppfæra allar reglur og fjölskyldan ætti að halda sig heima í fjórtán daga.
„Ég viðurkenni að það hvarflaði að mér að hundsa þessi skilaboð sem komu ofan í það sem við fengum fyrst. Ég ákvað samt að gera það ekki.“
Þar sem hann hafi ekki vitað hvernig hann ætti að bera sig að hafi hann spurst fyrir hjá Landlækni. Honum hafi verið tjáð að hann mætti fara út í garð og á svæði þar sem ekkert fólk væri.
„En ef einhver nálgaðist okkur ættum við að hlaupa í burtu.“
Þetta finnst honum undarlegt á meðan að ferðamenn frá Kína fái að koma hingað til lands og þurfi ekki að gera neinar ráðstafanir.
„Fólk labbar í gegnum vegabréfseftirlit og inn í landið. Svo er það frjálst ferða sinna,“