Til samræmis við túlkun heilbrigðisyfirvalda í nágrannalöndunum um að BDSM-hneigðir verði ekki taldar til sjúkdóma mælist landlæknir til þess að eftirfarandi sjúkdómsgreiningar verði ekki notaðar í því skyni hér á landi:
- Tvíhverf klæðskiptahneigð
- Blætisdýrkun
- Blætisdýrkun klæðskiptagerðar
- Sadómasókismi
Þetta kemur fram á vef embættisins í dag, en tilmælin eru í takt við bréf sem félagið BDSM á Íslandi sendi landlækni í september. Þar sagði að Ísland væri eina ríkið á Norðurlöndum sem enn skilgreindi BDSM-hneigðir sem geðsjúkdóm og hvatt var til þess að hneigðirnar yrðu teknar af sjúkdómaskrá. Um það leyti sagði Magnús Hákonarson, formaður BDSM á Íslandi, að það ylli mörgum hugarangri og kvíða að hneigðir þess væru skráðar sem sjúkdómur.