Íslendingar í köben í sigurvímu

Mikil fjöldi Íslendinga var saman kominn á hinu vinsæla vertshúsi The Dubliner við Amagertorv á Strikinu í Kaupmannahöfn í gærkvöld til að fylgjast með íslenska karlalandsliðinu etja kappi við Hollendinga í Amsterdam.

Þessi gamalgróna ölkrá sýnir vanalega alla leiki Íslands í beinni útsendingu enda býr fjöldi landsmanna í þessari gömlu höfuðborg okkar við Sundið.  Mikið var klappað og stappað allt til loka leiks þegar mikil fögnuður braust út meðal viðstaddra eins og mynd fréttaritara Hringbrautar í Höfn ber með sér.  Þess má geta að slatti af Hollendingum var á kránni en þeir voru kvaddir í kútinn með hinu vinsæla hvatningsklappi Íslendinga auk þess sem orðin \"Áfram Ísland“ og \"Ísland á EM“ hljómuðu dátt. 

Það verður örugglega stemning á Dubliner á sunnudag þegar jonn örlagaríki landsleikur við við Kazakstan fer fram á Laugardalsvelli.  Hringbraut mun að sjálfsögðu fylgjast með eins og landsmenn flestir.