Sú óheillaþróun hefur orðið meðal landsmanna að sífellt fleiri láta duga að hafa samband við Neyðarlínuna þegar ekið er fram á slysstað fremur en að menn hlúi sjálfir að hinum slösuðu. Að aka í burtu og hundsa bráðahættu annarra getur varðar fangelsi í allt að tvö ár.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en en þar er rætt bæði við starfsmann Neyðarlínunnar sem og lögreglumenn. Haft er eftir varðstjóra hjá Neyðarlínu að það sé vond tilfinning að fá neitun frá fólki sem hringir inn en vill ekki aðhafast, hefur kannski varla stoppað bílinn þótt það aki fram á slysstað, ökutæki utan vegar. Eftir því sem fram kemur í frétt Morgunblaðsins ber fólk við tímaskorti og slæmu veðri.
Að hundsa neyð annarra er lögbrot en brotum af þessu tagi hefur fjölgað í seinni tíð. Eitt alvarlegasta tilvikið er þegar eldri maður ók bíl sínum út í tjörn utan þjóðvegar. Þar lá hann meðvitundarlaus en fjöldi ökumanna ók hjá og gaf sér að ökumaður væri látinn án þess að aðhafast.
Sjá umfjöllun Morgunblaðsins hér.