Vísindaráð almannavarna hélt fund í gær til að fara yfir stöðu mála vegna landriss og jarðskjálfta í grennd við fjallið Þorbjörn á Reykjanesskaga. Að öllu óbreyttu mun vísindaráð almannavarna koma aftur saman til fundar síðari hluta næstu viku. Jarðskjálftavirkni heldur áfram á svæðinu, en hún dreifist á nokkrar sprungur norður af Grindavík.
Landið við Þorbjörn rís enn og nemur landrisið nú alls 3-4 cm þar sem það er mest. Þær niðurstöður sem fengist hafa úr úr mælingum á jarðskorpuhreyfingum og líkanreikningum benda til þess að risið eigi upptök sín á um 4 km dýpi. Töluverð óvissa er enn um dýpi þenslumiðjunnar. Merkin sem sjást eru til samræmis við að kvika sé að safnast fyrir í jarðskorpunni. Líkanreikningar benda til að rúmmál hennar sé um 1-2 milljónir rúmmetra. Á fundinum kom fram að of snemmt sé að útiloka aðrar skýringar en kvikuinnskot þykir sú líklegasta. Engin áhrif kviku hafa komið fram í jarðhitakerfi Svartsengis.
Verið er að bæta þremur nýjum jarðskjálftamælum við rauntímavöktun Veðurstofunnar og tveir í viðbót verða settir upp á næstu dögum. Helsti tilgangur þeirra er að bæta áreiðanleika jarðskjálftastaðsetninga. Gas- og efnamælingar í jarðhitavökva hafa verið auknar á jarðhitasvæðinu við Svartsengi og Eldvörp í samstarfi við HS orku. Þá vinnur ÍSOR að þyngdarmælingum til að kanna og fylgjast með mögulegum breytingum í jarðskorpunni.
Síðastliðinn mánudag var haldinn íbúafundur vegna jarðhræringanna í íþróttahúsinu í Grindavík, en húsfyllir var á fundinum. Á íbúafundinum gerði Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur. grein fyrir hugsanlegum atburðum sem gætu orðið í framhaldi landrissins. Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum og Rögnvaldur Ólafsson frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fóru í stuttu máli yfir hvernig rýming sem boðuð væri með skömmum fyrirvara færi fram, en verið er að vinna að ítarlegri rýmingaráætlun fyrir Grindavík, Svartsengi og Bláa lónið.