Landeigandi við Stuðlagil segir að sífellt færist í vöxt að gestir Stuðlagils sýni af sér vítaverðan glannaskap við náttúruundrið. Það geti verið stórhættulegt.
„Það dettur ekki nokkrum manni í hug, sem þekkir þessa á frá blautu barnsbeini, að fara út í hana,“ segir Stefanía Kristín Karlsdóttir, einn landeiganda á Grund um ána Jöklu,í viðtali við Fréttablaðið í kvöld.
Nýlegt myndband af ungum manni að stökkva niður Stuðlagil og út í ána hefur vakið athygli á Instagram upp á síðkastið en Stefanía Kristín segir þetta athæfi stórhættulegt.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við sjáum þetta, því miður. Ég veit ekki hvort er hægt að kalla þetta tískubylgju sem er í gangi,“ segir hún. „Svo var annar á einhverju uppblásnu dýri þarna um daginn og fær alveg brjálæðislega athygli... Ég held að þetta séu bara menn sem eru svolítið að reyna að fá athygli. Þetta eru aðallega strákar að fíflast. Þeir sem vilja fá athygli og follow á Instagram þeir ættu ekki að velja sér þetta athæfi.“
Segir Stefanía og bendir á að ekki megi gleymast að Jökla, eða Jökulsá á Dal, sé hættuleg jökulá. „Í byrjun júní þegar sem mesta snjóbráðnunin var þá var vatnsborðið svona þremur til fjórum metrum hærra. Þá er þetta bara orðin öskrandi jökulá, eins og Þjórsá eða Ölfusá. Þessar ár eru allar af sama meiði, þær eru straumharðar, ljótar og þungar og fæstir lifa það af að fara í þær,“ segir Stefanía.
Það geti verið lífshættulegt að vanmeta ánna.
„Núna er hún alveg ofboðslega vatnslítil. Hún er svona græn og virkar saklaus í góðu veðri. Hún virkar rosalega krúttleg en það eru þungir straumar í henni,“ útskýrir hún. Hún segir þannig að þeir sem þekki til geti auðveldlega séð hvernig víða í ánni við Stuðlagil megi finna svokallað niðurstreymi, sem getur reynst óreyndum sundmönnum afar hættulegt.
Hún kveðst þá ekki geta bannað fólki að synda í ánni, það sé á eigin ábyrgð þar eins og hvar annars staðar. „Við erum með aðvörunarskilti þar sem við segjum að fall í ána sé lífshættulegt. Hún er straumhörð, þung og köld og fólk er þarna á eigin ábyrgð. Það er eiginlega algjörlega óvinnandi vegur að reyna að hafa vit fyrir fólki.“