\"Keypti lambafile á grillið í gær. Kjöt á 4866 kr. kg. enda voru góðir gestir hjá okkur Helenu. Þegar það kom á diskana kom í ljós þetta var eitt ólseigasta kjöt sem við höfðum fengið og fór svo að við gáfumst upp og snérum okkur að því að klára meðlætið.\"
Þetta reyndist helgarupplifun Guðmundar Gunnarssonar, fyrrverandi formanns Rafiðnaðarsambands Íslands, en þessi landskunni verkalýðsfrömuður vandar landbúnaðarkerfinu ekki kveðjurnar í nýjustu fésbókarfærslu sinni: \"Klárlega ekki lamd heldur eitthvað mun eldra,\" skrifar hann og er hvergi sáttur.
Hann segir að á meðan hann og sessunautar hans hafi verið að rembast við að sarga kjötið í bita hafi rifjast upp fyrir honum heimsókn nokkurra starfsmanna verkalýsfélaganna í eitt stærsta sláturhús landsins hér um árið, en þar var þeim meðal annars sýnt hvernig kjötið var flokkað: \"Bestu skrokkarnir fóru inn á ákveðið færiband; \"Þetta fer til útlanda\" var okkur sagt, næstbesta fór inn á annað færiband sem fór í kjötvinnslu tiltekins fyrirtækis og svo restin í allar hinar búðirnar.\"
Niðurstaða Guðmundar eftir reynslu helgarinnar er þessi: \"Við erum að borga vel á annan tug milljarðs í þetta kerfi, sem virðist fara að mestu til milliliðanna og svo er hent í okkar það lakasta\"