Lánakerfi að norrænni fyrirmynd

Útlánakerfi að norrænni fyrirmynd, þar sem lánum nemenda er að hluta breytt í styrk útskrifist þeir innan ákveðins tímaramma, myndi fela í sér aukinn þjóðhagslegan ábata og hvetja nemendur til að klára nám á „réttum“ tíma. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stúdentaráði Háskóla Íslands. Vísir.is greinir frá. 

Stúdentaráðið tekur undir ummæli Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra sem sagði í fréttum í gær að nauðsynlegt væri að endurskoða útlánakerfi LÍN. Í samtali við Fréttablaðið sagði hann að engin alvöru stefnumótun væri á bak við styrkjakerfi íslenska námslánakerfisins þegar kæmi að því hvernig styrkjum væri úthlutað.

Í tilkynningu Stúdentaráðs segir að útlánakerfi að norrænni fyrirmynd gæti mögulega leyst vandann. Þannig væri hægt að breyta framfærsluláni nemenda í styrk og á sama tíma jafna hlut námsmanna og gæta jafnræðis.