Lamin og hótað: á flótta með ungabarn - 144 konur og 100 börn flúðu heimili sitt vegna ofbeldis á íslandi

Aldrei hafa fleiri konur nefnt ofbeldi gegn börnum sem ástæðu komu í Kvennaathvarfið á síðasta ári. Í tilkynningu frá Kvennaathvarfinu kemur fram að á síðasta ári flúðu 144 konur og 100 börn undan ofbeldismönnum í Kvennaathvarfið. Konur dvöldu í athvarfinu frá einum degi uppí 236 daga eða að meðaltali í 30 daga. Börn dvöldu í athvarfinu í frá einum degi upp í 155 daga, að meðaltali í 39 daga. Konurnar voru á aldrinum 18 ára til 81 árs. Börnin voru frá nokkurra daga gömul upp í 16 ára.

Ofbeldismennirnir voru að 95% karlmenn, 72% eru af íslenskum uppruna og voru þeir á aldrinum 18-83ja ára.

Að meðaltali dvöldu 23 íbúar í athvarfinu á dag, 12 konur og 11 börn. Þá komu 294 konur í samtals 545 viðtöl án þess að til dvalar kæmi. Samtals komu því 438 konur í athvarfið í viðtöl eða dvöl á árinu. Til viðbótar hittu ráðgjafar athvarfsins 214 einstaklinga í viðtölum í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.

Ástæða komu (flestar konur nefna fleiri en eina ástæðu komu).

Andlegt ofbeldi                      93%

Líkamlegt ofbeldi                   60%

Fjárhagslegt ofbeldi               48%

Kynferðislegt ofbeldi             37%

Ofbeldi gegn börnum             35%

Morðhótanir                           26%

Kyrkingatak                           25%

Stafrænt ofbeldi                     20%

Eltihrellir                                16%

Fram kemur í svörum kvennanna að alls búa 349 börn undir 18 ára að aldri á ofbeldisheimilunum sem þær koma af. Einungis 27% barnanna höfðu fengið einhverja aðstoð vegna þess ofbeldis sem barnið bjó við á heimili sínu en 44% kvennanna sögðu að barnavernd hefði verið tilkynnt um ofbeldið.

Alls voru 12% kvennanna með líkamlega áverka við fyrstu komu í athvarfið (23% dvalarkvenna og 6% kvenna í viðtölum) en rúmlega helmingur (53%) sögðu frá því að hafa einhvern tíma hlotið líkamlega áverka í sambandinu.

54% sögðust hafa óttast um líf sitt í sambandinu.

42% sögðu lögreglu hafa komið á vettvang ofbeldisins í eitt eða fleiri skipti.

15% höfðu kært ofbeldið til lögreglu, meirihluti (60%) þeirra mála var enn í vinnslu en dómur hafði fallið í 5% málanna, 16% kærðra mála hafði verið verið felld niður,  5% höfðu fengið nálgunarbann og 5% neyðarhnapp.

Hér má sjá tengsl þeirra við konurnar:

Eiginmaður                            26%

Sambýlismaður                      13%

Kærasti                                   6%

Fyrrverandi eiginmaður         13%

Fyrrverandi sambýlismaður   15%

Fyrrverandi kærasti                11%

Annar                                     15%