Verkfall sex stéttarfélaga iðnaðarmanna hefst á miðnætti í kvöld náist ekki að semja, en forvígismenn Samataka atvinnurekenda, viðsemjenda félaganna segjast vera ágætlega bjartsýnir um að samningar takist í dag.
Félögin sem um ræðir eru MATVÍS, Grafía/FBM, VM, aðildarfélög Samiðnar, Félag hársnyrtisveina og aðildarfélög Rafiðnaðarsambandsins. Tímabundið verkfall var fyrst boðað 10. til 16. júní en 8. júní var verkfallsaðgerðunum frestað til dagsins í dag.
Verkfall iðnaðarmanna innan þessara félaga mun hæglega hafa mikil áhrif hér á landi. Ef rafvirkjar leggja niður störf geti það m.a. haft áhrif á flugsamgöngur en meðal þeirra sem myndu leggja niður störf eru rafvirkjar og rafeindavirkjar á Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli. Þeir sjá m.a. um viðhald á ljósabúnaði á flugvöllum og flugleiðsögubúnaði.
Veitingageirinn mun og verða fyrir barðinu á vinnustöðvun, en meðal þeirra sem myndu leggja niður vinnu eru bakarar, kökugerðarmenn, framreiðslumenn, kjötiðnaðarmenn, matreiðslumenn, nemar og aðrir sem starfa við framreiðslu, matreiðslu og sölu á matvælum. Ef verkfall verður stöðvast því starfsemi veitingahúsa, mötuneyti, kjötvinnsla og bakaría um allt land.
Þar fyrir utan koma ekki út dagblöð ef félagsmenn Grafíu/Félags bókagerðarmanna leggja niður störf, en þar með stöðvast öll prentun, forvinnsla, bókband og frágangur og má búast við því að dagblöð, vikublöð og tímarit komi ekki út á meðan verkfallið stendur. Þá er hætt við að starfsemi ljósvakamiðla lamist sakir verkfalls rafiðnaðarmanna sem halda þar um alla þræði útsendinga og upptakna á þáttum.
Loks munu félagar í Samiðn sem starfa í byggingargreinum, bílgreinum, hársnyrtigreinum, máltæknigreinum, tækniteiknun, garðyrkju og skipasmíði leggja niður störf. Það mun ekki einasta hafa áhrif á byggingariðnaðinn í heild sinni heldur stöðvast einnig alls konar þjónusta við orkuveitur, stóriðju og sjávarútveginn, svo sem viðhald á skipum.