Lamandi áhrif á ferðaþjónustu

Ef af yf­ir­vof­andi verk­falli Starfs­greina­sam­bands­ins verður gæti það haft gríðarlega slæm áhrif á ferðaþjón­ust­una og langvar­andi verk­fall verið rot­högg fyr­ir mörg fyr­ir­tæki út á landi sem hafa byggt sig upp í kring­um auk­inn ferðamanna­straum.


Þetta seg­ir Helga Árna­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferðaþjón­ust­unn­ar í sam­tali við mbl.is. í dag. At­kvæðagreiðsla um verk­falls­boðun stend­ur nú yfir en eins og mbl.is hef­ur sagt frá gæti verk­fallið náð til þúsunda starfs­manna í ferðaþjón­ust­unni á lands­byggðinni. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Starfs­greina­sam­band­inu sem mbl.is vitnar til í frétt sinni munu um 10 þúsund manns kjósa um verk­falls­boðun. Yfir 40% þeirra eru á matvælasviði og nær 30% í ýmsum þjónustugreinum. Drífa Snæ­dal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins, seg­ir að í samtali við vefinn að stór meiri­hluti þeirra sem falli í þessa tvo flokka komi að ferðaþjón­ustu