Lágverðsbankar eru að sigra heiminn

Í nýlegri skýrslu Alþjóðabankans um lágverðsbanka (“low cost banking”) kemur fram að tvöfalt fleiri Afríkubúar eru með farsíma en bankareikning. Þeir nota símann sem greiðslutæki og inneignarreikning. Símainneign er orðin að bankainneign.

Þetta skrifar Thomas Möller í athyglisverðri úttekt sinni á breytingum á bankakerfinu á hringbraut.is, en ítarlegan pistil hans um það efni er að finna hér til hliðar á forsíðu vefjarins. Hann sér mörg teikn á lofti um stórfelldar breytingar á rekstri banka; þær muni breiðast út frá fátækari löndunum sem hafa ekki efni á jafn dýru bankakerfi og þekkist til dæmis á Íslandi.

\"Í Suður Ameríku sjá smásöluverslanir að mestu um bankaþjónustu. Hefðbundnir bankar eru of dýrir fyrir þessi lönd. Bankamillifærslur kosta allt að hundraðfalt meira en snjallsímamillifærslur,\" skrifar Thomas og vitnar í úttekt Alþjóðabankans: \"Hann telur að ný tegund banka fyrir alla íbúa fátækari landa sé að verða til fyrir tilstilli upplýsingatækninnar og nýrra dreifileiða. Þessir nýju lágverðsbankar þurfa minni vaxtamun, lægri þjónustugjöld, færri starfsmenn og fá útibú.\"

Þessi þróun er þegar hafin í Afríku, bendir Thomas á og tekur sem dæmi að um helmingur íbúa Kenía noti M-PESA símafyrirtækið sem innleggs- og millifærslubanka. Fyrirtækið, sem sæki rætur sínar til Vodafone, teygi nú enda sína til Austur Evrópu, Indlands og Suður Afríku: \"Sama er að gerast í Bandaríkjunum þar sem tugmilljónir símnotenda notar símann í auknum mæli við millifærslur sem kallast “mobile money”,\" skrifar Thomas áfram og nefnir aðrar tækninýjungar í þessum efnum. \"Venmo, sem er smáforrit frá PayPal sér um að senda peningaskilaboð milli fólks sem eru í raun millifærslur sem kosta ekki neitt. Þegar er byrjað að tala  um að “venmoa” peninga. Facebook, með sína 1.400 milljón notendur,  er komið með ókeypis “person-to-person” greiðsluþjónustu og bendir á að það kosti ekki meira að senda peninga en að senda skilaboð eða myndir yfir netið.\" 

Og hann segir þróun þessa augljósa: \"Um allan heim er verið að þróa einfaldari og hagkvæmari banka. Fjárfestar hafa sett um 12 milljarða USD í frumkvöðlafyrirtæki á sviðið fjármálatækni (“fintech”) á árinu 2014 sögn The Economist. Allar þessar fjárfestingar miða að því að þróa og stofna fjármálafyrirtæki með einfaldan og ódýran rekstur fjármálaþjónustu og án ríkistryggingar á innlánum.\"

Og þessi þróun muni skila sér hingað heim á næstunni.