Starfshópur sem skipaður var til að kanna mögulegan ávinning af klukkubreytingu leggur til að klukkunni hér á landi verði seinkað um klukkustund, en hópurinn skilaði greinargerð þessa efnis til heilbrigðisráðherra í gær.
Verði breytingin að veruleika mun birtustundum á morgnana yfir vetrarmánuðina fjölga um 13 prósent og þá fjölgar vetrardögum þar sem bjart er orðið klukkan 09:00 um 64. Ekki er lagt til að taka upp sérstakan sumar- og vetrartíma.
Klukkunni á Íslandi var breytt til núverandi horfs fyrir hálfri öld með tilliti til efnahags- og viðskiptahagsmuna með þeim afleiðingum að sólris og sólsetur hefur verið um klukkustund síðar hérlendis en tímabeltið gefur tilefni til.