Sundabraut

Sundabraut hefur verið á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar allar götur frá árinu 1984. Sundabraut myndi gegna mikilvægu hlutverki í stofnbrautakerfi höfuðborgarsvæðisins.

Brautin er í raun og sann forsenda fyrir allri uppbygginu á Geldinganesi og á Álfsnesi. Í samþykktu aðalskipulagi borgarinnar fyrir árin 2010 - 2030 er gert ráð fyrir að Sundabraut gæti verið lögð á þessum fyrrgreinda skipulagstíma. Ekki er hins vegar hvorki gert ráð fyrir uppbyggingu á Geldinganesi né á Álfsnesi.

Lega Sundabrautar vefst fyrir Vegagerðini og Reykjavíkurborg því allir valkostir eru mjög dýrir í framkvæmd. Þess vegna næst ekki sameiginlega niðurstaða um ákveðinn kost. Efasemdir eru einnig um að brautin leysi umferðarvanda borgarinnar.

rtá