Lágmarkslaun í 300 þúsund í maí 2018

Kjarasamningur til þriggja ára á að verja millitekjur og koma lágmarkslaunum í 300 þúsund krónur. Þetta er leiðarstefið í nýjum kjarasamningi sem VR, LÍV, Flóabandalagið og Stéttarfélag Vesturlands eru að ganga frá við Samtök atvinnulífsins.


Búist er við því að skrifað verði undir samninga í þessa veru á morgun, en talið er fullvíst að þeir verði forskrift að öðrum samningum sem nú eru lausir, þar á meðal milli Starfsgreinasambandsins og viðsemjenda þeirra, svo og iðnstéttanna, en óvíst er hins vegar hvernig og hvort samningar á morgun, svo fremi þeir takist, hafi áhrif á samninga á opinberum vettvangi. 


Gert er ráð fyrir því að í nýjum samningum VR, LÍV, Flóans og StéttVest verði lágmarkslaun komin upp í 300 þúsund krónur frá og með maí 2018, eða eftir rétt þrjú ár. Þannig myndu lægstu taxtar Flóabandalagsins hækka um rösk 32,5% á samningstímanum og lægstu taxtar VR um 31,1% næsta hálfa fjórða árið.


Samningafundir ofangreindra aðila við SA halda áfram í dag og er sem fyrr segir stefnt að undirritun þeirra á morgun. Forkólfar Starfsgreinasambandsins hitta einnig viðsemjendur sína klukkan 13.00 í dag og þá kemur í ljós hvaða áhrif tíðindin af systursamtökunum hafa á framvindu samningagerðar SGS við SA.