Lagðir þú drauma þína á hilluna?

Við búum í samfélagi þar sem því er hamrað í okkur frá barnæsku að rétt sé að lifa lífinu á ákveðinn hátt. Í leikskóla er stefnan sett á grunnskóla og í grunnskóla er framhaldsskóli næstur á dagskrá og svo að sjálfsögðu háskólanám.

Í flestum tilvikum er slegið á puttana á okkur þegar við stígum út fyrir rammann strax frá unga aldri og djúpt innra með okkur festist sú skilyrðing að rétt sé að gera eins og hinir. Hvort sem okkur líkar það betur eða verr eru skilaboðin nokkuð einföld: \"Stefndu að því að vera vammlaus þegn í samfélaginu og komast í sæmilega vel launaða vinnu!“

Þetta segir í bókinni Toppstöðin sem byggir á samnefndum sjónvarpsþáttum sem sýndir voru á RÚV í ár, en í bókinni miðla tugir frumkvöðla af reynslu sinni, gjarnan fólk sem hefur ekki fylgt troðnum slóðum í lífinu. 

Í bókinni segir að þegar komi fram á fullorðinsár lendi margir í því að staldra við og átta sig á að ástríðuna vantar: \"Það sem einkenndi okkur öll sem börn hefur smátt og smátt sofnað á þeirri vegferð að hegða lífi sínu eins og umhverfi okkar bað um. Því miður þarf gjarnan stórkostleg áföll eða veikindi til að fólk virkilega fari inn að kjarnanum og spyrji sig raunverulega af öllu hjarta: ,,Hvað vil ég gera við mitt líf?“

Í mörgum tilvikum veldur spurningin ein og sér óþægindum ef hennar er svarað af heiðarleika. Margir hafa lagt drauma sína á hilluna af ótta við að mistakast. Að stíga út fyrir rammann, taka áhættu og þora að elta hugsjónir sínar krefst hugrekkis, seiglu og krafts. Það hljómar kannski draumi líkast að vera eigin herra og starfa við eigin hugarsmíð. 

En oftast þegar við heyrum sögur af frumkvöðlum sem hafa náð árangri í atvinnulífinu vantar hálfa söguna. Þeir sem ekki hafa reynt það á eigin skinni átta sig líklega fæstir á erfiðinu sem býr að baki. Sjálfsefi, fjárhagsvandi, gegndarlaus vinna og gagnrýni frá nánasta umhverfi eru aðeins brot af því sem flestir sem feta þessa leið hafa þurft að ganga í gegnum. En bara það eitt að vera samkvæmur sjálfum sér, rífa plásturinn af og taka áhættuna, gerir yfirleitt vegferðina eina og sér fullkomlega þess virði.\"

Svona rita Kristinn Jón Ólafsson og Þórdís J. Wathne útgefendur Toppstöðvarinnar, svo og Sölvi Tryggvason ritstjóri bókarinnar sem eins og fyrr segir byggir á fyrrnfendum þáttum þar sem lífi frumkvöðla var fylgt eftir frá hugmynd til veruleika. Til að fylgja þáttunum eftir var ráðist í útgáfu bókarinnar. Þar lögðu 40 frumkvöðlar og annað fólk úr atvinnulífinu hönd á plóg og skrifuðu reynslusögur sínar og annan fróðleik, en höfundar bókarinnar segja að það hafi verið ómetanlegt að skrá niður þessa þekkingu og deila henni sem víðast svo reynslan verði öðrum til framdráttar.