Tillaga þess efnis að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis skoði hvort Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hafi lagt á ráðin um að taka ESB-umsóknina af dagskrá með þeim hætti sem utanríkisráðherra gerði í gær, án allrar aðkomu þings og þjóðar, er á döfinni samkvæmt heimildum innan úr þingheimi, en þar þykir mönnum ljóst að nefndin verði að fjalla um allar hliðar þessa máls sem hefur sett stjórnskipun landsins í uppnám; er framkvæmdavaldið bundið af ályktunum þingsins eða ekki?. Hver áhrifamaðurinn af öðrum líkir gerningi utanríkisráðherra við valdsviptingu Alþingis, nú síðast Þorsteinn Pálsson í pistli sínum á hringbraut.is. Össur Skarphéðsson fyrrverandi utanríkisráðherra segir að fullveldið hafi verið tekið af Alþingi með ákvörðun eftirmanns síns. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna eru allir þeirrar skoðunar að ráðherra hafi farið gegn stjórnskipan landsins og í reynd brotið stjórnarskrána.
Ekki eru dæmi þess að forseti Íslands hafi verið kallaður á fund stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis eða forvera þeirrar nefndar. Samkvæmt stjórnarskrá er forseti Íslands ábyrgðarlaus af stjórnarathöfnum. Sigurður Líndal prófessir emiritus segir í samtali við hringbraut.is hæpið að nefnd á vegum þingsins geti kallað forseta á fund sinn, einmitt í ljósi þessa; hann sé ábyrgðarlaus í þessu samhengi.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er á heimleið í dag frá útlöndum og á dagskrá hans í kvöld er að sitja árlega þingveislu á Hótel Sögu.