Lagasetningin jafngildir uppsögnum!

Alþingi mistókst í morgun að ná samkomulagi um tilhögun  þingfundar í dag þar se, leggja á fram frumvarp um lagasetningu á verkfall heilbrigðisstétta á Landspítalanum. Þing­fundi hef­ur verið frestað til 13:30. Mótmælendur á Austurvelli segja lagastetningu ígildi upppsagna.

Upp­haf­lega var áformað að þing­fund­ur hæf­ist um 10:00 í morg­un, en rúm­lega klukkustund síðar var sagt að fund­ur ætti að hefjast 11:30. Nú hef­ur fundi verið frestað til hálf tvö sem fyrr seg­ir. Ástæða enn frekari frestunar fundarins mun vera vegna fundar sem Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn stend­ur fyr­ir Val­höll í há­deg­inu þar sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra mun ræða um af­nám haft­anna, efna­hags­mál og skatta­lækk­an­ir og ástand og horf­ur í stjórn­mál­um. 

Eins og hringbraut.is hefur greint frá kom ríkisstjórnin sam­an til fund­ar í gær­kvöld, en þar var ákveðið var að leggja fram gfrumvarp um að fresta verkfall BHM og FÍH til 1. júlí og setja málið í gerðardóm að því loknu hafi samningar þá ekki náðst.

Erfiðlega hefur gengið í morgun að ná samstöðu milli stjórnar og stjórnarandstöðu um þingstörfin í dag.

Töluverður hópur mómælenda er staddur á Austurvelli. Þeiri hafa lagt mót­mæla­spjöld við þing­húsið, en á þeim stend­ur: \"Mann­rétt­indi? Nei + Launa­jafn­rétti? Nei = Upp­sögn? Já“