Lagasetning á verkfall hjúkrunarfræðinga getur leitt til fjöldauppsagna þeirra og landflótta og haft í för með sér að sú undanþágumönnun sem nú er við lýði vegna verfallanna verði framtíðarmönnun á sjúkrahúsunum.
Þetta sagði Ólafur G. Skúlason, formaður Félags hjúkrunarfræðinga í þættinum Þjóðbraut hjá Páli Magnússyni í gærkvöld en þar var farið yfir þá alvarlegu stöðu sem uppi er á Landspítalanum eftir að á annað þúsund hjúkrunarfræðingar lögðu niður störf í síðustu viku. Hvorki gengur né rekur í samningaviðæðum félagsins við ríkið. Verkfall hjúkrunarfræðinga hefur gert það af verkum að fækka hefur þurft sjúkrarúmum á spítalanum um fimmtung.
Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður Bandalags háskólmanna var einnig á þjóðbraut Páls í gærkvöld en þar sagði hún að lög til að stöðva verkfall háskólamanna væru versta hugsanlega aðgerð í núverandi stöðu til að leysa engan vandann. Þau væru auk þess niðurlægjandi fyrir fólk sem hefur staðið í átta vikna verkfalli til að fá menntun sína metna til launa.
Félagsmenn BHM stóðu þögula mótmælastöðu framan við Stjórnarráðið í morgun á meðan þar fór fram ríkisstjórnarfundur en forkólfar BHM hafa sagt ríkið eiga í sýndarviðræðum við háskólamenn - og engin alvara sé að baki viðræðunum af þeirra hálfu.