Lagabreyting mun auka fjárfestingu erlendra sjóða

Frumvarp til breytinga á lögum um gjaldeyrismál vegna sérstakrar bindingarskyldu Seðlabankans, sem er oft nefnd innflæðishöft, mun auka fjárfestingu erlendra sjóða hér á landi sem hefur hingað til verið óheimilt að fjárfesta í eignum sem eru ekki umbreytanlegar. Þetta er mat sérfræðinga á fjármálamarkaði. 

Sérstök bindingarskylda Seðlabankans, oft nend innflæðishöft, nær til erlendra fjárfesta og er ætlað að sporna gegn vaxtamunarviðskiptum sem voru mikið vandamál fyrir hrunið. Erlendir fjárfestar hafa þurft að uppfylla skylduna með því að binda 20 prósent af fjárfestingu sinni inn á bundinn reikning hjá innlendu fjármálafyritæki. Þetta hefur gert erlendum fjárfestum erfitt fyrir þar sem fjármunir eru skilyrðislaust bundnir út bindingartímann og kann slíkt að ganga gegn fjárfestingarstefnum erlendra sjóða og reglum sem þeir þurfa að fylgja. 

 Ánar á 

http://www.visir.is/g/2018181218938