Lag íslands var neðst í riðlinum

Framlag Íslands, Our Choice flutt af Ara Ólafssyni, varð neðst í fyrri undanriðli Eurovision söngvakeppninnar á þriðjudag. Lagið hlaut aðeins fimmtán stig.

Sjö stiganna komu frá hvít-rússnesku dómnefndinni, fjögur stig frá þeirri tékknesku, dómnefnd Makedóníu gaf laginu tvö stig og dómnefndir Sviss og Belgíu sitt stigið hvor. Lagið hlaut ekkert stig frá áhorfendum.

Ísrael og Kýpur, tvö efstu lög keppninnar, urðu einnig í tveimur efstu sætum undanriðilsins á þriðjudag. Tékkland varð í þriðja sæti undanriðilsins og Austurríki í því fjórða, en Austurríki endaði í þriðja sæti aðalkeppninnar.