Fólk sem þarf að fara í reglulega skoðun vegna hugsanlegra kvilla á geislalækningadeild Landspítalans kemst ekki lengur að á deildinni vegna verkfalls geislafræðinga. Í mörgum tilvikum á þetta við um fólk sem er á að fá úr því skorið hvort það sé lífshættulegt mein.
Verkfall geislafræðinga, sem eru innan Bandalags háskólamanna, er ótímabundið, en hefur staðið yfir í hartnær þrjár vikur. Á þeim tíma hafa á annað þúsund erindi safnast upp á deildinni, mjög gjarnan hjá fólki sem hefur verið í reglulegu eftirliti vegna gruns um þróun meinvarps í líkamanum. Þetta sama fólk hefur nú sem stendur enga möguleika á að fá frekari svör við því hvort hugsanlegur sjúkdómur þess fari vaxandi eða ekki.
Verkfall geislafræðinga á Landspítalanum er partur af deilu BHM við ríkisvaldið og er talið vonlítið að samningar náist á næstu dögum.
Á meðan daprast hafur þeirra mörgu sem þurfa á reglulegri skoðun á deildinni að halda.