\"Einu sinni var talað um \"Moggalýgi\" og hafði ég alltaf skömm á því hugtaki. Ég þarf greinilega að fara að endurskoða afstöðu mína til þess,\" skrifar Sigurbjörn Sveinsson, fyrrverandi formaður Læknafélagsins um samanburð Morgunblaðsins á launum lækna hér á landi og á Norðurlöndunum.
Sigurbjörn er ekki einn um þessa skoðun því bæði félag hans og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga telja óeðlilega staðið að téðum samnburði og hafa félögin sent blaðinu athugasemdir sínar, en þau telja ótækt að bera saman heildarlaun lækna á Íslandi og föst mánaðarlaun annars staðar á Norðurlöndunum. Í athugasemd Læknafélagsins segir að hlutfall yfirvinnugreiðslna hér á landi sé og hafi verið umtalsvert hærra en annars staðar á Norðurlöndunum, aðallega vegna þess að læknar hér á landi taki tíðari vaktir vegna læknaskorts. Samanburður á heildarlaunum hér og dagvinnulaunum annars staðar gefi því aldrei rétta mynd af málinu.
Sigurbjörn segir í tilskrifi sínu að þessi aðferð Moggans hafi greinilega gengið í fólk \"og glöggir vinir mínir, sem ég hafði samband við í morgun, höfðu ekki tekið eftir þessu,\" skrifar hann þar. Og hann segir Moggann ljúga: \"Það þarf ekkert að ræða tölurnar. Þær eru ósambærilegar og æpandi á súluritunum. Heildarlaun á Íslandi og grunnlaun á hinum Norðurlöndunum. Það sér hvert mannsbarn að þessi keisari er fatalaus - í engu,\" skrifar fyrrverandi formaður Læknafélags Íslands um útreikninga Morgunblaðsins.