Læknir sendir fólk heim í kynlíf

Teitur Guðmundsson læknir segir í umræðu um kynlíf eftir fimmtugt í þættinum ,,Fólk með Sirrý\" á Hringbraut miðvikudagskvöld kl. 20:30 að stundum sendi hann fólk heim með þau fyrirmæli að stunda kynlíf að læknisráði. Margt fróðlegt og skemmtilegt kemur fram í þættinum en þau Teitur læknir og Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringarþerapisti og hjúkrunarfræðingur, fara á kostum. Þau ræða sjálfsfróun og kynlíf hjá miðaldra og eldra fólki sem þau segja að geti verið betra og algengara en hjá ungu fólki. Þau blása á ýmsar algengar klisjur og bábiljur eins og að kynlíf sé bara fyrir unga, granna og fallega fólkið. Þátturinn verður endursýndur á Hringbraut um helgina. Hér er brot úr þættinum.