Hjalti Már Björnsson bráðalæknir á Landspítalanum segir að æ fleiri ánetjist morfínskyldum verkjalyfjum á Íslandi og óttast þróun í sömu átt og í Bandaríkjunum, þar sem talað er um morfínfaraldur.
„Við sjáum aukningu í sölu á sterkum morfínskyldum lyfjum og ávísanir lækna hafa verið að aukast. Og svo sjáum við í bráðalækningum aukinn fjölda af einstaklingum sem koma eftir ofskammt sem þarf að bjarga, eins og um helgina,“ sagði Hjalti í viðtali á Rás 2 í morgun.
Svandís Svavarsdóttir sagði í hádegisfréttum RÚV að það sé mikið áhyggjuefni að horfa á fjölgun ofneyslutilvika á morfínskyldum lyfjum.
Það kom fram í fréttum RÚV í gær að 10 manns komu á bráðamóttöku Landspítalans um páskana vegna ofneyslu fíkniefna og áfengis; þar af voru fimm tilvik mjög alvarleg þar sem fólk var komið í öndunar- og hjartastopp.
„Og því miður eru enn sorglegri sögur sem við heyrum frá SÁÁ um að dánartíðni ungra fíkla hafi aukist marktækt undanfarin ár. Þannig að það eru sennilega tugir ungra einstaklinga sem eru búnir að látast úr þessu og alvarleiki fíknifaraldursins er að minnsta kosti jafn mikill og umferðarslysin.“
Hjalti segir of algengt að verkir séu meðhöndlaðir með sterkum verkjalyfjum, sem fólk síðan ánetjist, en í mörgum tilvikum myndi íbúfen virka jafn vel.