Oft koma upp aðstæður þar sem fyrstu viðbrögð lækna skipta sköpum í meðferð sjúklinga. Þetta á við um slys og bráð veikindi af ýmsum toga, segir læknir sem stefnir á héraðslækningar.
Þetta kemur fram í Læknablaðinu í viðtali við Steinþór Runólfsson sem hefur sett sér það markmið að verða héraðslæknir.
Fram kemur í blaðinu í grein sem lesa má í heild hér að héraðslækningar eða rural medicine eru sérgrein innan læknisfræðinnar sem þjóðir eins og Ástralía, Nýja-Sjáland og Kanada hafa þróað á undanförnum árum.
„Segja má að því sé í ákveðnum skilningi horfið aftur til upphafsins þar sem læknirinn sinnir sínu umdæmi einsamall og þarf að kunna á flestu skil til að geta leyst vandamál sem upp koma,“ segir í Læknablaðinu.
„Mér finnst skipta verulegu máli að vera vel undirbúinn fyrir þetta starf svo maður geti notið þess
fremur en vera stöðugt kvíðinn yfir að upp komi tilfelli sem maður stendur ráðþrota frammi fyrir,“
segir Steinþór Runólfsson sem stefnir á héraðslækningar í framtíðinni.
Steinþór starfar sem deildarlæknir á slysadeild Landspítala í Fossvogi og hafði framsögu á málþingi á Læknadögum þar sem hann sagði frá því að hann hefði markað sér þá stefnu í framtíðinni að starfa sem héraðslæknir og skipulegði sérnám sitt með hliðsjón af því.
„Okkur langar að búa einhvers staðar fyrir utan höfuðborgina, þar sem við getum haft jarðnæði til afnota, verið með hesta og kannski fleiri skepnur, og vonandi alið upp börn í slíku umhverfi.”
„Hér á Íslandi eru sem betur fer mjög góðar samgöngur og vegalengdir stuttar í samanburði við Ástralíu, Nýja-Sjáland eða Kanada. Engu að síður koma þær aðstæður upp að fyrstu mínútur skipta sköpum í meðferð sjúklinga. Þetta á við um slys og bráð veikindi af ýmsum toga þar sem grípa þarf inn í strax til að ekki fari illa. Það er hægt að sjá fyrir sér hópslys þar sem héraðslæknirinn er fyrstur á vettvang og þá þarf að vita hvað ber að gera þó biðin eftir aðstoð sé kannski ekki löng. Mér finnst skipta verulegu máli að vera vel undirbúinn fyrir þetta starf svo maður geti notið þess fremur en vera stöðugt kvíðinn yfir að upp komi tilfelli sem maður stendur ráðþrota frammi fyrir,“ hefur Læknablaðið eftir Steinþóri.
Þá segir hann alls ekki þvingandi að vera alltaf á vaktinni.
Til skoðunar hefur verið hvort boðið verður upp á nám í lækningum við Háskólann á Akureyri, nám sem einkum myndi nýtast íbúum í dreifðum byggðum. Slíkt nám yrði andstæða þeirra sérhæfingar sem einblínt hefur verið á í læknaskólum síðari áratugi.