Læknaþjónusta: betri fyrir kýr en fólk

Auðveldara er nú sums staðar á Íslandi fyrir kýr að fá læknisþjónustu en menn.

Þetta kom fram á fundi á Hvolsvelli í gærkvöld en frá fundinum segir á vef Rangárþings eystra.

Nærri 400 manns mættu á íbúa­fund sem hald­inn og var fund­ar­efnið skerðing á þjón­ustu heilsu­gæsl­unn­ar í bæn­um.

Segir á vef Rangárþings að af öðrum ólöstuðum hafi stutt saga Bjarna Böðvarssonar, í Þinghól varpað skýrasta ljósi á umkvörtunarefni íbúa sem fleiri landsmenn tengja við.  Þar kom fram að það væri auðveldara fyrir veika kýr að fá læknaþjónustu í heimabyggð utan hefðbundins tíma en mannfólkið.

Uppskar Bjarni bóndi dynjandi lófatak í lok frásagnar sinnar, segir á vef Rangárþings.

Sveitarstjórnarfólki var á fundinum tíðrætt um lélega upplýsingaveitu og erfiðleika í samskiptum við forstjóra. Eins og aðrir íbúar lýstu þeir furðu sinni yfir fækkun á opnunardögum þegar íbúum fjölgar sem og fjöldi ferðamanna sem streymir gegnum Rangárvallasýslu eykst stöðugt, segir í fréttinni.

Einnig var mikið rætt um þjónustu heilsugæslunnar utan dagvinnutíma.

Yfirmanni heilsugæslustöðvarinnar var í lok fundar afhentur undirskriftalisti með nöfnum 652 einstaklinga sem óska eftir að skerðing á opnunartímum Heilsugæslunnar á Hvolsvelli verði dregin til baka.