Læknar ekki kvenhatur og níðingsskap með því að senda menn á vog

Menn verða ekki ofbeldismenn vegna fíkniefna. Menn nauðga ekki útaf því þeir voru fullir. Menn velja að beita ofbeldi og nauðga, þeir vita hvað þeir eru að gera og það að þeir noti vímuefni þýðir ekki að þeir alltíeinu-púff verði nauðgarar alveg óvart.

Fólk vill gera mikið úr fíknivanda ofbeldismanna og láta sem það sé einhver djöfull sem býr í þeim. Djöfull sem hægt er að fjarlægja með því að fjarlægja efnin. Særa úr þeim illa ofbeldisanda einhvernveginn. En allir heilvita sérfræðingar eru sammála um að ofbeldismenn sem eiga við fíknivanda að stríða hætta ekki að vera ofbeldismenn þegar þeir fara í meðferð. Þú getur nefnilega ekki læknað kvenhatur og níðingsskap með því að senda menn á Vog. Það er engin tilviljun að svo margar konur sem fara í meðferð við fíknivanda segja sögur af ofbeldismönnum þar og hvernig þeir \"veiða\" ný fórnarlömb. Samfélagið hefur vonandi ekki gleymt hvernig karlmaður nauðgaði 16 ára stelpu á Vogi fyrir stuttu.

Fíkn hefur víðtæk áhrif, það er engin spurning. Fólk getur gert allskonar sem kæmi ekki til greina ef þau væru ekki að berjast við fíknivanda. En menn sem beita ofbeldi gera það þótt þeir séu edrú. Menn undir áhrifum fíkniefna og ákveða að nauðga og berja eru grófari og hættulegri en ef þeir væru edrú.

Þótt Kristján Gunnar Valdimarsson er bara nýjasta dæmið af þeim sem fá að njóta vafans hjá mörgum - bara því hann neytti fíkniefna - þá er þetta gegnumgangandi mýta að áfengi og önnur vímuefni orsaki ofbeldi og nauðganir. Fíkniefni gera ofbeldismenn hættulegri - þau breyta engum í ofbeldismann. En fíkniefni hafa verið ofboðslega þægileg og áhrifarík leið fyrir nauðgara og ofbeldismenn til að komast hjá ábyrgð á brotum sínum. Reynum okkar besta og gerum 2020 að árinu sem við leyfum þeim það ekki.

Pistilinn birti Elísabet Ýr upphaflega á Facebook.