Könnun á meðal lækna innan Landspítalans sýnir að aðeins 11% þeirra eru fylgjandi staðsetningu nýs þjóðarsjúkrahúss við Hringbraut, en könnunin fór fram á sameiginlegri fésbókarsíðu læknanna.
Þetta kemur fram í þætti Ólafanna á Hringbraut í kvöld, en þar taka hagfræðingarnir Arnarson og Ísleifsson á móti Ebbu Margréti Magnúsdóttur, fæðingarlækni og Gesti Ólafssyni, arkitekt og skipulagsfræðingi og ræða á dýptina hvar nýjum spítala landsmanna sé best niður komið.
Í upphafi þáttarins eiga Ólafarnir tal saman, eins og jafnan í þáttum þeirra - og ræða þar meðal hvað landflótti menntafólks virðist koma flatt upp á peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Ólafarnir eru á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:30 í kvöld.