Lækna-Tómas furðar sig á því að fólk birti myndir af sér reykjandi til stuðnings Bubba

Skurð­læknirinn Tómas Guð­bjarts­son, einnig þekktur sem Lækna-Tómas, segist furða sig á að fólk birti mynd af sér reykjandi til stuðnings Bubba en ný­lega var sígaretta fjar­lægð úr munn­viki Bubba á mynd sem var notuð til að aug­lýsa söng­leikinn 9 líf um ævi tón­listar­mannsins.

„Á ekki bara að tagga börnin og barna­börnin líka? Senni­lega hefur þó til­gangi aug­lýsinga­stofunnar verið náð - þ.e. að vekja at­hygli á söng­leiknum - og selja fleiri miða,“ segir Tómas í Face­book færslu um málið.

Á Facebook síðu auglýsingastofunnar Brandenburg má sjá ýmsar myndir þar sem teiknarar hafa skipt sígarettunni út fyrir ýmislegt annað. Að sögn Tómasar hefði þó verið best að skipta bara hreinlega um mynd.

Mikilvægt að „af-kúla“ reykingar hjá yngri kyn­slóðinni

Í færslunni segist Tómas trúa á frelsi listarinnar en að það hafi verið smekk­laust að nota myndina til að aug­lýsa söng­leikinn. „Það eru til þúsundir af flottum myndum af Bubba og al­gjör­lega ó­þarfi að sýna hann reykjandi, enda löngu hættur að reykja og í dag þekktur fyrir að tengja sig við hollan lífs­stíl,“ segir Tómas í færslunni.

„Reykingar eru dauðans al­vara og taldar kosta ís­lenskt þjóð­fé­lag allt að 80 milljörðum á ári,“ bætir hann við og greinir frá því að í 90 prósent til­fella sé hægt að rekja lungna­krabba­mein, annað al­gengasta krabba­mein á Ís­landi, til reykinga.

Þá segir Tómas að það hafi skipt mestu máli að „af-kúla“ reykingar hjá yngri kyn­slóðinni, meðal annars í kvik­myndum og aug­lýsingum, og spyr hvaða skila­boð fólk sé að senda börnum og ung­lingum. „Aug­lýsingin telst klár­lega ekki ó­lög­leg. En hún er að mínu mati hall­æris­leg og ó­þörf.“