Lækna-Tómas ekki bjartsýnn ef þau fá að ráða - „Leggja starfsemi Landspítalans á hliðina á nokkrum dögum“

Tómas Guðbjartsson, betur þekktur sem Lækna-Tómas, sakar tvær þingkonur Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi hæstaréttardómara um að „pönkast á nauðsynlegum sóttvörnum“. Þetta kemur fram í færslu sem birtist á Facebook-síðu hans í kvöld.

Hann segir að sóttvarnayfirvöld þurfi á stuðningi að halda á erfiðum tímum, þar á meðal frá þeim Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, Diljá Mist Einarsdóttur og Jóni Steinari Gunnlaugssyni, en hann kallar þau lukkuriddara. „Undanfarna daga hafa ýmsir lukkuriddarar stigið fram og heimtað að sóttvörnum vegna COVID sé aflétt strax.“

Áslaug, Diljá og Jón hafa öll gagnrýnt núverandi sóttvarnarreglur, en Tómas virðist ekki sáttur með þá gagnrýni, en játar þó að líklega finnist mörgum tillögur þeirra skynsamar, enda flestir orðnir þreyttir á faraldrinum. Hann viðurkennir einnig að gagnrýni þeirra byggist á gögnum, að innlögnum á spítala fari fækkandi þrátt fyrir háa tíðni smita. Þó finnst honum ekki skynsamlegt að afnema sóttvarnir með hraði.

Hann minnst til að mynda á ástandið á Evrópumeistaramótinu í handbolta og spyr sig hvað skipuleggjendur mótsins voru að hugsa þegar kom að sóttvörnum.

„Það er ágætt að hafa í huga það sem nú er að gerast á EM í handbolta - og sýnir hversu smitandi veiran er. Omicron er þegar búin að eyðileggja evrópumeistaramótið og sífellt fleiri kalla eftir því að því verði hætt. Stór hluti íslenska liðsins og dómarar hafa greinst smitaðir og enn fleiri hafa sýkst í öðrum liðum eins og því þýska. Þetta hefðu skipuleggjendur átt að sjá fyrir og skipulagt miklu öflugri sóttvarnir - líkt og gert var á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi og á Olympíuleiknum i Tokyo. Þar voru smit fá , enda engir áhorfendur leyfðir. Nú eru 20.000 manns að kjassast í fullum íþróttahöllum og leikmenn knúsa hvern annan eftir hvert mark. Hvað voru skipuleggjendur að hugsa þegar kom að sóttvörnum?“

Tómas spyr þau Áslaug, Diljá og Jón Steinar sömu spurningar, en hann segir að hópsýkingar væru líklegar til að koma upp ef þau myndu fá að ráða.

„Sömu spurningu má spyrja ofangreindan ráðherra, þingmann og fyrrverandi hæstaréttardóma. Ef þau fengju að ráða gætu hæglega komið upp hópsýkingar sem leggja starfsemi Landspítalans á hliðina á nokkrum dögum - og gert honum ómögulegt að sinna neyðarhlutverki sínu.“

Í lok færslu sinnar segir Tómas að í sumum aðstæðum sé best að láta þá sem þekkja hlutina besta sjá um að stjórna, og biðlar til fólks að veita sóttvarnayfirvöldum stuðning.

„Ljóst er að þótt starfsfólk spítalans væri einkennalítið þá mætir það ekki til vinnu sýkt af Covid, enda skjólstæðingar okkar oftar en ekki veikir fyrir og COVID-sýking getur reynst þeim banvæn. Þetta er augljósasta ástæðan fyrir því að sóttvarnalæknir vill nú aflétta sóttvörnum hægt og rólega . Enda getum við á Landspítala ekki kallað inn varaþingmenn líkt og gert var við nýegar hópsýkingar á Alþingi.

Stundum er gott að draga andann djúpt og láta þá sem best þekkja til leiða þjóðina í gegnum öldurótið Það hefur tekist afar vel hingað til - og ekkert í spilunum að svo þurfi ekki að vera áfram. Skoðanaskipti eru nauðsynleg en á erfiðum tímum þurfa sóttvarnayfirvöld stuðning frá öllum i brú skipsins, líka lukkuriddurum.“