Hjartaskurðlæknirinn Tómas Guðbjartsson, öðru nafni Lækna-Tómas, fagnaði á nýársdag einu ári án áfengis. Þetta tilkynnti hann í færslu á Facebook-síðu sinni og sagði þar frá því að hann hefði upphaflega farið í bindindi fyrir ári til þess að vinna veðmál gegn eiginkonu sinni, sem þá var að taka svokallaðan „Dry January“ ásamt vinkonum sínum.
Þegar Tómas gerði þessa tilraun komst hann að raun um að hann fór að sofa betur og að orka hans jókst bæði í íþróttum og í vinnunni. Þessi aukalega orka hafi verið guls ígildi í því álagi sem hefur hvílt á starfsmönnum Landspítalans undanfarin misseri.
Tómas segist að vísu aldrei hafa átt í sérstökum persónulegum vandræðum með áfengi en hafi séð vini og ættingja glíma við áfengisfíkn og að það sé gott að taka stjórnina með því að hækka neyslu þess.
„Hvað sem því líður hef ég ákveðið að framlengja þurrabúðina inn í árið 2022. Sjáum svo til hversu lengi það varir - en frúin er a.m.k. ekki til í annað veðmál!“