Lækkun tekjuskatts einstaklinga í millistétt

Í kosningaþætti Framsóknarflokksins í kvöld er farið yfir stefnumál flokksins fyrir kosningar og þá ekki síst hugmyndir um að lækka tekjuskatt einstaklinga. Markmiðið með því er að styðja sérstaklega við millistéttina. Á sama tíma yrði skattur á þá tekjuhærri hækkaður. Með þessu, er ætlunin að auka jöfnuð í þjóðfélaginu. Í þættinum er einnig farið yfir stefnu flokksins í húsnæðismálum, byggingu nýs Landspítala og fleira. Umsjónarmaður þáttarins er Karl Garðarsson, en viðmælendur að þessu sinni eru Eygló Harðardóttir og Willum Þór Þórsson.

Kosningaþáttur Framsóknarflokksins er á dagskrá kl.22.00 í kvöld en þátturinn er endursýndur á morgun og um næstu helgi.