Lækkun á flugfargjöldum

Síðustu ár hefur verð á flugi samanborið við aðra ferðamáta farið lækkandi. Ástæða lækunarinnar hefur meðal annars verið sú aukna samkeppni sem fylgdi mildun regluverks í kringum flugþjónustu sem og tækniframfarir. Lækkun eldsneytisverðs hefur síðan stutt við þessa þróun. Þetta hefur komið Íslandi vel þar sem lækkandi verð á flugi gerir Íslandsför fýsilegri. Samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands fara um 22% af útgjöldum ferðamanna í flug og er ferðaákvörðunin talsvert næm fyrir þessum kostnaðarþætti.

Nánar www.islandsbanki.is/morgunkorn