Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, segir að þau hjónin hafi náð að lækka matarinnkaup um 25%, án viðamikilla breytinga á þessum veigamikla þætti heimilishaldsins.
Þetta gerðu þau eftir að hafa rýnt í heimilisbókhaldið, en um það var rætt við Breka í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld og hægt er að skoa hér á vef stöðvarinnar.
Breki segir í þættinum að fljótlega eftir að hann fór að nýta sér Meniga hagkerfið í netbankanum, sá hann að kostnaður heimilisins við matarinnkaup var ívið hærri hjá þeim í samanburði við fjölskyldur á sama búsetusvæði og í sömu stærð.
Við nánari eftirgrennslan tóku þau hjónin eftir því að samkvæmt Meniga, fóru þau mun oftar út í búð að meðaltali, miðað við aðrar fjölskyldur til samanburðar. Og ,,Bingó” segir Breki í viðtali kvöldsins, því eftir að hafa fækkað búðarferðum þannig að nú séu gerð ein stór innkaup á viku, þá lækkaði matarkostnaðurinn um 25%.
Í síðustu viku var áhorfendum Ég bara spyr, sett það heimaverkefni að setja sér markmið um fjármál heimilisins. Í kvöld er síðan rætt við Breka um hver ávinningur af slíku bókhaldi er.
Ég bara spyr er á dagskrá Hringbrautar öll þriðjudagskvöld í umsjá Rakelar Sveinsdóttur og nöfnu hennar Garðarsdóttur.