Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur ákveðið að lækka vexti af lánum. Þetta er gert til að auðvelda sjóðsfélögum að taka lán, aðstæður á fasteignamarkaði kalli á þetta viðbragð eins og fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Rætt var við framkvæmdastjóra sjóðsins sem taldi rétt að grípa til vaxtalækkunar sem eru sumpart á skjön við stefnu Seðlabankans.
Bylgjan hafði eftir framkvæmdastjóranum að hann hefði ekki áhyggjur af að sama staða væri að koma upp og fyrir hrun með of greiðu aðgengi að lánsfé. Skýrari reglur um greiðslumat og lánshæfi væru við lýði nú en fyrrum. Staða lífeyrissjóða hefði jafnframt vænkast.