Gary Lineker segir á Twitter að Neymar, stjarna Brasilíu, hafi lægsta sársaukaþröskuld allra leikmanna í heimsmeistarakeppninni frá því að Opta-mælingar hófust. Lineker segir reyndar líka á Twitter að Neymar spili jafnvel og hann vælir- hann sé ótrúlega góður knattspyrnumaður.
Þá segir Miguel Layun, leikmaður Mexíkó, að Neymar ætti kannski að finna sér eitthvað annað að gera en að spila fótbolta.
Neymar er mikið ásakaður um það að henda sér í grasið og ýkja allar snertingar sem hann fær í leikjum.