Lægra lóðarverð, hærra íbúðarverð

Guðlaug Kristjánsdóttir, sem er forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, segir Hafnarfjarðarbæ hafa lækkap lóðarverð í stað þess að það skilaði sér í lægra íbúðarverði, hafi raunin orðið allt önnur. „Í Hafnarfirði eigum við tvö nýleg dæmi um fjölbýlishús þar sem bærinn lækkaði lóðaverð og íbúðirnar á báðum stöðum eru með hæsta fermetraverð í manna minnum. Þar lækkaði sveitarfélagið sínar tekjur en íbúar fá í sinn hlut mjög hátt kaupverð.“

Guðlaug er gagnrýnin á Eyglóu Harðardóttur félagsmálaráðherra og bendir í því samhengi á skrif Eyglóar á Facebook. Eygló skrifaði: „Nú í morgun voru 199 lóðir/jarðir á höfuðborgarsvæðinu auglýstar til sölu á vef mbl.is, og stundum sama lóðin tvisvar.“

Guðlaug gerir lítið úr rannsóknavinnu ráðherrans, og segir sveitarfélögin almennt ekki auglýsa lóðir á fasteignasíðum.


„Það sem er ekki síður umhugsunarvert, er að Alþingismenn skuli krefja sveitarfélög um að þau afsali sér mögulegum tekjum, á sama tíma og aðgerðir ríkisstjórnarinnar í tengslum við séreignarsparnað skapa risastórt tekjutap án skýrra áætlana um uppbætur. Og á sama tíma og aukin umsvif í ferðamennsku, atvinnugreininni sem er í mestum vexti, skila sér lítið sem ekkert í kassa sveitarfélaganna. Á tímum þar sem mörg sveitarfélög standa höllum fæti fjárhagslega.“