Lægðarmiðjan nær landi en spáð var

Búið er að loka veginum um Reykjanesbraut, Hellisheiði, Sandskeið, Þrengsli, Kjalarnes og Mosfellsheiði. Þjóðvegir í kringum höfuðborgina eru með öðrum orðum lokaðir og verða varla opnaðir í bráð, en skil óveðurslægðarinnar fara hjá suðvestanlands á sjötta tímanum í dag. Þaðan æðir illviðrið yfir landið og má búast við hríðarkófi og stormi víðast hvar norðan- og norðaustanlands þar til seint í kvöld. Veðrið er jafnvel verra en óttast var í fyrstu spám, því sjálf lægðarmiðjan kemur nær landi en haldið var í fyrstu.
Ekkert ferðaveður er nú á vesturhluta landsins og hafa ökumenn víða komist í vandræði það sem af er degi. Nokkrar útafkeyrslur hafa orðið á Reykjanesbraut og árekstrar verið tíðir á höfuðborgarsvæðinu.