Laddi leikur golf á spáni

Síðari hluti umfjöllunar Atvinnulífsins um starfsemi Spánarheimilis á Spáni er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 20.00.  Þá leikur þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson m.a. golf með Þórhalli Sigurðssyni – Ladda – á Campoamor sem er einn af helstu golfvöllum á Torrevieja-svæðinuen Þórhallur hefur leikið golf þar um áraraðir.  Skemmtikrafturinn bregður á leik og gefur í skyn nýjan karakter„Gulla golfara“. 

Auk golfsins verður umfjöllun um ýmsar tegundir fasteigna sem Spánarheimili býður viðskiptavinum sínum auk viðtala við nokkra byggingaverktaka á svæðinu.  Einnig verður stutt heimsókn á svæðið fyrir norðan Benedorm þar sem Spánarheimili er líka með þjónustu. 

Kvikmyndataka var í höndum Friðþjófs Helgasonar og myndataka með dróna var unnin af Utsyn.is