Að óbreyttu mun Gunnar Smári Egilsson stofnandi Sósíalistaflokksins kjósa Sjálfstæðisflokkinn á laugardag.
Hann kveðst hafa látið tíu ára dóttur sinni það eftir í nýliðnum kosningum að ákveða hvernig atkvæði hans skyldi ráðstafað.
Stúlkan hafi tekið þetta hlutverk alvarlega, kynnt sér mál og fylgst vel með.
Í þetta sinn er niðurstaða hennar afdráttarlaus – pabbi hennar á að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Aðspurð um ástæðurnar fyrir svo óvæntu vali sagðist barnið alveg vera til í að flytja til útlanda.
Þegar faðir hennar hváði skýrði hún mál sitt frekar: Mamma segist ætla að flytja til útlanda ef Sjálfstæðisflokkurinn vinnur í kosningunum.