Kynnir kosti fisk­eldis á landi eða í lokuðum sjó­kvíum

Verndarsjóður villtra laxastofna, North Atlantic Salmon Fund, hóf á fimmtudag kynningarátakið Á móti straumnum. Er það um kosti þess að stunda fiskeldi á landi eða í lokuðum sjókvíum.

„Markmið átaksins er að kynna kosti fiskeldis í lokuðum sjókvíum, sem er hvort tveggja í senn öruggt og umhverfisvænt,“ er haft eftir talsmanni átaksins, Gísla Sigurðssyni íslenskufræðingi, í fréttatilkynningu,

„Fiskeldi er mikilvæg atvinnugrein og mun hafa veigamiklu hlutverk að gegna þegar fram líða stundir. Ísland er ákjósanlegur staður til að byggja upp öflugt fiskeldi en það er mikilvægt að stunda fiskeldi í sátt við náttúruna og án þess að það skaði ímynd og orðspor Íslands,“ er áfram haft eftir Gísla.

Í fréttatilkynningunni segir að talsverð umfjöllun hafi verið um fiskeldi í opnum sjókvíum við Ísland. „Minna hefur farið fyrir umræðu um heilbrigt og umhverfisvænt fiskeldi í lokuðum sjókvíum eða um eldi á landi. Markmið kynningarátaksins er að upplýsa frekar um neikvæð umhverfisáhrif opinna eldiskvía í sjó og kosti fiskeldis á landi og í lokuðum sjókvíum, sem er hvort tveggja í senn öruggara og umhverfisvænna.

 

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/verndarsjour-kynnir-kosti-fiskeldis-a-landi-ea-i-lokuum-sjokvium

 

 

 

 

 

ogNánarumhverfisvænna.“