Kynnir áætlun um verkföll

Starfsgreinasambandið hefur boðað til blaðamannafundar á Akureyri í dag þar sem kynnt verður áætlun um fyrirhuguð verkföll til að knýja á um endurnýjun kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins. Meðal þess sem kynnt verður er tímasetning og umfang aðgerðanna sem munu, ef af verður, hafa lamandi áhrif á stóran hluta íslensks atvinnulífs, enda er sambandið stærsta landssambandið innan ASÍ með um 50 þúsund félagsmenn í almennum verkamannastörfum.


Viðræðum sambandsins við samtökin var sem kunnugt er slitið fyrir skemmstu en himinn og haf virðist vera á milli kröfugerðar verkafólks og vilja atvinnurekenda til samninga á þeim forsendum. Forvígismenn Starfsgreinasambandsins hafa nefnt vel yfir tíu prósenta hækkun á lægstu launum á meðan vinnuveitendur vilja halda sig við þrjú prósent.


Komið hefur fram hér á hringbraut.is að verkamannalaun hér á landi eru um 30 prósentum lægri en gerist á meðal frændþjóðanna.