Kynlífsnámskeið fyrir karlmenn

Eins og endranær er stöllunum Björk Eiðsdóttur og Auði Húnfjörð sem stjórna MAN-lífsstílsþætti á Hringbraut ekkert mannlegt og þaðan af síður kvenlegt óviðkomandi - og það sannar þáttur þeirra í kvöld svo til endanlega.

Þar ræðir Ragnheiður Eiríksdóttir um athyglisvert kynlífsnámskeið fyrir karlmenn sem hún heldur utan um þessa dagana, altso námskeiðið - og svo mæta mæðgurnar Eva Dögg Sigurgeirsdóttir og Edda Björgvinsdóttir í þáttinn en þær vilja gera Íslendinga aftur að hamingjusömustu þjóð í heimi. Þá verður fjallað um beytingarskeið kvenna af þeirri þekkingu sem þar er til staðar.

MAN-lífsstílsþáttur byrjar klukkan 20:00 í kvöld.