Algengt er í fjölbýlum að hljóð á borð við kynlífsstunur heyrist á milli íbúða og trufli nágranna þeirra sem þeim valda. Ekkert í fjölbýlishúsalögum tekur beint á þessum vanda og er þar raunar ekki öðru til að dreifa en nærgætni og umburðarlyndi.
Þetta er meðal þess sem fram kom í þættinum Sjórnarhorni á Hringbraut í gærkvöld, en þar fjallaði umsjónarmaðurinn Þórdís Lóa Þórhallsdóttir um vandamál sem upp kunna að koma vegna húsakaupa og samveru fólks í nábýli hvert við annað.
Í þættinum kom fram að nágrannadeilur og ágreiningur vegna fasteignakaupa eru af öllu tagi, en algengasta deilumál húseignamála er þó þegar seljandi neitar að ganga frá afsali. Í slíkum deilum getur kaupandi krafist aðstoðar dómsvaldsins - og ef seljandi neitar enn að ganga frá afsali, þrátt fyrri dóm, getur sýslumaður gert aðför að seljanda og gert það opinbert, líkt og seljandi hafi gefið það út. Slíkt ferli getur tekið allt að tvö ár með tilheyrandi kostnaði að sögn Bjarka Þórs Sveinssonar lögfræðings á Málflutningsstofu Reykjavíkur, eins viðmælanda þáttarins.
Annað algengt vandamál varðar dýrahald, en lögum um það var breytt 2011. Samkvæmt þeim verða 2/3 hluta eigenda, sem hafa sameiginlegan inngang að samþykkja dýrahald. Slíku leyfi fylgja þó skilyrði, svo sem opinbert leyfi fyrir dýrinu, svo og samþykki allra íbúa í húsinu fyrir dýrinu áður en eigandi þess flytur í eignina.
Þá hafa ný vandamál hafa skapast í fjölbýlum í kjölfar aukinnar ferðamennsku hér á landi. Eigendur hafa tekið uppá því að leigja út íbúðir sínar til styttri tíma, oftast í kringum tvær til þrjár nætur í senn, sem veldur töluverðri umgengni og á stundum auknum hávaða í fjölbýlinu. Kærunefnd húsamála á vegum Velferðarráðuneytisins hefur gert skil á því að hagnýtinguréttur eigenda sé það ríkjandi að slík leiga á eignum sé með réttu lögleg. Rökstuðningur Kærunefndarinnar er að ferðamenn valda ekki auknum óþægindum og aðrir leigjendur í fjölbýlinu.
Auk Bjarka Þórs var rætt við Aðalheiði Karlsdóttur löggiltan fasteignasala í þættinum um allar hliðar þessa viðkvæma en mikilvæga máls sem varðar stærstu upphæðirnar í heimilisbókhalda venjulegs fóllks.