Kynleiðrétting rædd í þaula

Óttar Guðmundsson geðlæknir og Ugla Stefanía Jónsdóttir formaður Trans-Íslands verða aðalgestir í þættinum Kvennaráð á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld þar sem rætt verður opinskátt um kynleiðréttingar, orsök þeirra, eðli og eftirköst, en aðgerðir af þessu tagi hafa mjög færst í vöxt hér á landi á allra síðustu árum. Sjálf byrjaði Ugla leiðréttingarferli sitt fyrir fimm árum, þegar hún var átján ára - og mun hún lýsa breytingunni á sjálfri sér í þættinum í kvöld og hvaða líðan og tilfinningar hún hefur fært henni. Ugla hefur einmitt vakið athygli fyrir hispursleysi í umræðunni um kynleiðréttingar þar sem engin umræðuefni eru undanskilin, jafnvel ekki sjálf fullnægingin eftir að skipt hefur verið um kynfæri. Óttar Guðmundsson er sérfróður um þennan anga læknisfræðinnar og hefur hjálpað ófáum drengjum og stúlkum sem hafa tekist á við þann vanda að lifa í líkama af röngu kyni.


Horfa á Kvennaráð