Kynjamyndir skýjanna í öræfum

Himinninn yfir Skaftafellssýslu eystri var ekki af verri endanum um nýliðna helgi, en þar skartaði hann sínum fegurstu myndum eins og þessi mynd ber með sér sem var tekin yfir Svínafelli í Öræfum.

Hitauppstreymi jarðar og kuldinn og endurspeglun sólar af jöklinum spila hér saman eins og tónlistarmaður á fiðlu og útkoman er þessi töfrandi sena á himnum sem bylgjast um hvolfið líkast töframynd.

Þetta munu vera vindskafin netjuský eins og þau heita á máli fræðimanna - og hvað svo sem heitinu líður eru þau falleg og eftirminnileg öllum sem sjá þau iða á festingunni.