Kynferðisleg sjálfsmynd og „rútínan\"

Björk Eiðsdóttir og Auður Húnfjörð taka á móti gestum á þætti sínum MAN á milli 20 og 21 í kvöld.

Kári Eyþórsson, fjölskylduráðgjafi ræðir börnin okkar og rútínuna og Þorgerður Sigurðardóttir sjúkraþjálfi fræðir okkur (og ykkur) um grindarbotninn og mikilvægi þess að þjálfa hann vel. Síðast en ekki síst þá talar Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur um „hina sterku kynferðislegu sjálfsmynd“ í sérstakri umfjöllun um konur og kynlíf. 

 

Einnig bregður fyrir í MAN þætti kvöldins, Hafliða Ragnarssyni konfektgerðarmeistara.