Skýrslan Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2018 er komin út. Í skýrslunni er fjallað um tíðni afbrota á höfuðborgarsvæðinu, en markmiðið er m.a. að halda árlega skrá yfir afbrot í umdæminu og mæla þróun í afbrotatíðni milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir enn fremur:
„Tilkynningum um kynferðisbrot fjölgaði umtalsvert á milli ára, eða um 23 prósent. Tilkynningarnar voru um 42 fleiri en að meðaltali árin 2009 til 2017. Um það bil helmingur allra tilkynntra kynferðisbrota var vegna nauðgana.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 1.328 tilkynningar um ofbeldisbrot árið 2018, en ekki hafa jafn margar tilkynningar borist á einu ári frá því að samræmdar skráningar hófust árið 1999. Ekkert manndráp var til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu árið 2018. Langflestar brota eiga sér stað aðfaranótt laugardags og sunnudags.“